föstudagur, desember 01, 2006

Paa loppemarkedet.

Ég skrapp á flóamarkað í kvöld. Okkur vantar nefnilega sófa, í staðinn fyrir gamla rúmið mitt (frá því ég var 9 ára eða svo), sem hefur gegnt því hlutverki hér í Danmörku. Ég ætlaði aldeilis að vera góð og prútta vel, ef ég fyndi eitthvað. Reyndar hef ég sjaldan prúttað og hef lengi vel ætlað að hafa samband við Atla bróður fyrir helstu tækniatriðin.

Jæja, ég sá sem sagt sófa sem ég gat hugsað mér að kaupa, en ákvað að ég vildi ekki fara hærra en 500 d.kr. Það kom gamall maður aðvífandi til að aðstoða og ég ætlaði sko aldeilis að vera hörð og bauð 400kr (já, já þvílík hörkukelling eða þannig). Hann gerði hins vegar enn betur og bauð 200kr. á móti!! Uh....ja okei svaraði ég, algjörlega slegin út af þessarri prúttaðferð kallsins. Ég veit ekki hvort ég talaði svona óskýrt eða hvort hann hefur verið eitthvað heyrnaskertur, en ég ákvað allavega að hamra járnið á meðan það var heitt, og tók annan sófa sem var alveg eins, nema svolítið snjáðari, fyrir 150kr.

Seinna laumaðist hann svo upp að mér þegar ég var að skoða geisladiska/DVD hillu og bauð mér að kaupa á 10kr. Ég gerði sem sagt góða ferð en ég get ekki sagt að ég hafi þjálfað prútttæknina mína.

Ég er þegar búin að raða geisladiskunum í hilluna og get ekki annað sagt að Feng Shuið í horninu er allt annað . Ég finn allavega mikla ró og jafnvægi innra með mér þegar ég horfi yfir diskana, í stafrófsröð, í hillunni sinni. Og.....ég fann loksins Selló svítur Bachs ( algjörlega uppáhalds, uppáhaldstónlistin mín ef ég mætti bara eiga einn klassískan disk) sem ég hélt að hefðu orðið eftir heima, þar sem ég lagði aldrei í það að leita að disknum í óskipulögðum stöflunum. Andlega jafnvægið er sem sagt fullkomið í kvöld.

2 Comments:

Blogger Silja Rut said...

hey, þegar ég kem verður þú að vera búin að útbúa lista fyrir mig með helstu notuðu fatabúðunum í bænum...eða þú átt hann líklega bara til er það ekki:)

12:34 e.h.  
Blogger the honeybee said...

Jú, jú hef þetta allt á hreinu. Hvar eru ,,klassa" búðirnar, hverjar eru ódýrastar, hverjar eru óáhugaverðar. Verð búin að merkja þetta allt á kort og útbúa strætókerfi fyrir þig.

2:01 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home